Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq hélt til loðnuleitar sl. föstudag, en það eru Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sem standa fyrir leitinni. Mun leitarleiðangurinn taka tæplega viku. Sildarvinnslan fjallar um málið á heimasíðu sinni og ræddi við Geir Zoëga skipstjóra skömmu fyrir hádegi en þá var verið að taka sýni norðaustur af Kolbeinsey. „Þessi leiðangur er farinn í nánu samráði við Hafrannsóknastofnun en þó er enginn fulltrúi frá stofnuninni um borð. Við tökum sýni og könnum þau og frystum einnig sýni fyrir stofnunina. Hafrannsóknastofnun fær öll gögn leiðangursins þannig að allt er gert eins og um hefðbundna vetrarmælingu sé að ræða. Við hófum leitina norðvestur af Straumnesi en síðan eru farnir ákveðnir leggir austur með kantinum. Það var full ástæða til að leita núna enda hafa borist heilmiklar loðnufréttir frá togurum sem hafa verið að veiðum á svæðinu. Við fundum strax loðnu. Hún var dálítið blönduð fyrst en fljótlega var einungis um að ræða stóra kynþroska loðnu. Það hefur semsagt verið loðna á 180 sjómílna belti sem við höfum nú farið yfir og inn á milli hafa verið góðar torfur. Loðnan kemur að norðan og virðist vera að ganga upp að landinu í verulegu magni. Þetta ætti ekki að koma á óvart og er í góðum takti við haustmælinguna 2019. Ég hef verið bjartsýnn á loðnuvertíð í vetur og nú hef ég góð rök fyrir bjartsýninni. Þetta lítur bara afskaplega vel út,“segir Geir.