Samkvæmt tölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru á fimmtudag, er útflutningsverðmæti sjávarafurða komið í 224 milljarða króna á fyrstu 10 mánuðum ársins. Það er nánast á pari við útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu 10 mánuðum ársins í fyrra í krónum talið. Áhrifin af gengisveikingu krónunnar eru þó töluverð og mælist rúmlega 9% samdráttur á milli ára sé tekið tillit til þeirra. Það má rekja til rúmlega 8% samdráttar í útfluttu magni og ríflega 1% lækkunar á afurðaverði í erlendri mynt. Þessi lækkun á afurðaverði er lítilsháttar sé tekið mið af fyrstu 10 mánuðum ársins, enda hafði afurðaverð hækkað talsvert fram að COVID-19. Frá þeim tíma hefur afurðaverð lækkað og hefur sú lækkun aukist eftir því sem lengra hefur liðið á árið, líkt og kom fram í frétt á Radarnum nýverið.

Mestu munar um loðnu
Af einstaka tegundum sjávarafurða munar langmest um loðnuna í ofangreindum samdrætti, en sala á loðnubirgðum vóg nokkuð drjúgt í útflutningstölum síðasta árs. Í heild var útflutningsverðmæti uppsjávarafurða 23% minna í erlendri mynt á fyrstu 10 mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Útflutningsverðmæti þorskafurða hefur verið svipað það sem af er ári og það var á sama tímabili í fyrra. Talsverður samdráttur er hins vegar í útflutningsverðmæti annarra botnfiskafurða, eða sem nemur tæpum 13% í erlendri mynt. Þar munar mest um ufsa, en eins hefur talsverður samdráttur verið í útflutningsverðmætum á ýsu og karfa. Útflutningsverðmæti flatfisks hefur svo dregist saman um 14% á milli ára og skelfisks um 24%.

Meiriháttar endurskoðun
Auk hefðbundinnar útgáfu talna um vöruskipti birti Hagstofan niðurstöðu af sinni fyrstu meiriháttar endurskoðun (e. benchmark revision) á tímaröðum aftur í tímann. Við endurskoðun vöruskipta er meðal annars komið inn leiðréttingu á eldri gögnum vegna tollskýrslna sem ýmist höfðu ekki borist Hagstofunni eða reyndust rangar. Leiðréttingin leiddi til töluverðrar breytinga á útflutningsverðmætum sjávarafurða á árunum 2014 til 2018. Er útflutningsverðmæti sjávarafurða nú metið ríflega 18 milljörðum króna meira á tímabilinu en áður var talið. Þar munar langmest um leiðréttingar sem gerðar hafa verið á á útflutningsverðmætum uppsjávarafurða. Þar af munar mest um útflutningsverðmæti á makríl, sem hækkar samanlagt um 8,6 milljarða króna á tímabilinu miðað við meðalgengi fyrstu 10 mánuði ársins í ár. Útflutningsverðmæti síldarafurða eykst um 5,2 milljarða króna á sama kvarða og loðnuafurða um rúma 1,8 milljarð króna. Aðrar breytingar eru minniháttar.

Í þessu sambandi má rifja upp frétt sem birt var á Radarnum í byrjun maí. Þar var fjallað um leiðréttingu sem Hagstofan varð að gera á útflutningi sjávarafurða á fyrsta ársfjórðungi vegna gagna sem bárust henni fyrst þá, en voru vegna útflutnings sem átti sér stað á árunum 2014 til 2018. Er því ljóst að þær tölur eru komnar á réttan stað með þessari endurskoðun. Þetta þarf vissulega að leiðrétta á Radarnum, og mun það verða gert á næstu vikum.