Nýverið óskaði Vestmannaeyjabær eftir samstarfsaðila til að annast matargerð/matreiðslu, pökkun, dreifingu og framreiðslu á heimsendum mat til þjónustuþega stuðningsþjónustu og til stofnana Vestmannaeyjabæjar.

Á fundi fjölskyldu- og  tómstundaráðs í gær var svo ákveðið að semja við eina aðilan sem sendi tilboð í þjónustuna, S.B. heilsa ehf. en félagið rekur einnig veitingastaðinn Gott og Pítsugerðina.
Munu þau taka við þjónustunni í byrjun nýs árs og gildir samningurinn í 3 ár með möguleika á framlengingu um allt að tvö ár.