Nú nýverið afhenti Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum, Herði Orra Grettissyni, framkvæmdastjóra ÍBV, myndarlegan fjárstyrk til styrktar íþróttastarfi í Eyjum. Arnar segir í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að Bergur-Huginn vilji leggja sitt af mörkum til að unnt sé að halda uppi öflugu íþróttastarfi hjá ÍBV enda sé slíkt starf mikilvægur þáttur í samfélaginu. Heimasíðan ræddi við Hörð Orra og spurði hann hvort styrkur eins og sá sem Bergur-Huginn afhenti skipti miklu máli. „Já, hann skiptir svo sannarlega miklu máli. ÍBV varð fyrir gífurlegu efnahagslegu áfalli þegar ekki var unnt að halda þjóðhátíð og þá þurfa menn að reiða sig á styrki í ríkari mæli en áður. Það er samfélagslega mikilvægt að halda úti íþróttastarfi hér í Eyjum og það þarf að halda æfingagjöldum lágum svo allir eigi möguleika á að taka þátt í starfinu og styrkir fyrirtækja gera það kleift nú á þessum erfiðu tímum. Við erum svo sannarlega þakklát fyrir styrkinn frá Bergi-Hugin og það munu allar deildir félagsins njóta góðs af honum – handboltinn, fótboltinn og barna- og unglingastarfið,“ segir Hörður Orri.
Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri GRV og Arnar mynd/svn.is

Arnar Richardsson getur þess að Bergur-Huginn hafi fyrr á árinu styrkt ýmis verkefni á vegum ÍBV og hann sé sannfærður um að þeim fjármunum hafi verið vel varið. Þá nefnir hann að fyrir nokkru hafi Bergur-Huginn fært Grunnskóla Vestmannaeyja vesti að gjöf fyrir yngstu bekki skólans en vestin nota börnin í öryggisskyni þegar farið er út fyrir skólalóðina.