Í ljósi aðstæðna hafa aðstandendur Eyjatónleikanna, sem fara áttu fram 23.janúar næstkomandi, ákveðið í samráði við Hörpu tónlistarhús, að færa tónleikana til laugardagskvöldsins 01.maí 2021. Um leið verður smá breyting á söngvarahópnum, Helgi Björns og Silja eru því miður upptekin í öðrum verkefnum en í staðinn koma inn Brekkusöngsstjórnandann Ingó Veðurguð og Katrín Halldóra Sigurðardóttir, sem sló í gegn í söngleiknum Ellý. Fram kemur í tilkynningu frá tónleikahaldara að núverandi miðahafar verða að sjálfsögðu færðir á nýja dagsetningu, en geta einnig fengið miðana sína endurgreidda hjá tix.is eða harpa.is.