Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) standa fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Suðurlands n.k. fimmtudag kl: 12:15 – 13:00. Fundurinn verður í beinu streymi á ZOOM og eru allir áhugasamir hvattir til að taka hádegið frá og kynna sér markmið, áherslur og umsóknarferli sjóðsins ásamt því að ráðgjöf SASS verður kynnt.

Sjóðurinn er nú opinn fyrir umsóknir og er síðasti séns til að senda inn umsókn 2. mars 2021 kl. 16:00. Um er að ræða fyrri úthlutun þessa árs. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki sem skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu.

Umsækjendur og aðrir áhugasamir eru velkomnir að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og/eða leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, einnig má hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið [email protected]

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 2.mars 2021