Vestmannaeyjabær, sem og sveitafélög um allt land tekur þátt í samvinnuverkefninu “Fáðu þér G-Vítamín – Gleymdu þér á safni.” Geðhjálp stendur fyrir átaki, sem er liður í því að stappa stálinu í fólk á erfiðum tímum.

Fáðu þér G-Vítamín!
Frítt inn á valin söfn í samstarfi við sveitarfélög um land allt miðvikudaginn 10.febrúar. Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur.

Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.

Miðvikudaginn 10.febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“. Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni.

Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á gvitamin.is. Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum.

Viltu meira G-Vítamín? Á gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorra ásamt möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.

Eldheimar verða opnir frá 13:00 til 17:00 á miðvikudaginn 10. febrúar

GV_Sofn_1200x628