Á síðasta fundi bæjarstjórnar var samþykkt viljayfirlýsing um gerð baðlóns Vestmannaeyjum. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Kristján Gunnar Ríkarðsson, undirrituðu viljayfirlýsinguna fyrir hönd aðila.
Þeir sem að verkefninu standa er Lava Spring Vestmannaeyjar ehf. og í forsvari er Kristján Gunnar Ríkharðsson. Kristján hefur komið að ýmsum stórum verkefnum, m.a. við uppbyggingu Skuggahverfis í Reykjavík og fjölbýlishúsabyggð á RÚV reitnum við Efstaleiti.
Hönnuðir baðlónsins eru T.ark arkitektar ehf.