Markmiðið með heimsókninni er að auka þjónustu í heimahéraði fyrir pólskættaða íbúa Vestmannaeyja.

Greinileg þörf er fyrir slíkri heimsókn þar sem allt að 20 manns skráðu sig til þess að sækja um vegabréf og leita úrlausnar annarra mála sem sendiráðið getur leyst. Sendiherrann, Gerard Pokruszyński, hefur komið nokkrum sinnum áður til Eyja, m.a. til að taka þátt í Pólskum dögum sem fram fóru í febrúar 2020 þar sem jafnframt var boðið upp á þjónustu konsúlsins. Konsúllinn sem kemur í þetta skipti er nýlega tekinn til starfa og heitir Łukasz Winny.

Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs, Klaudia Wróbel, fjölmenningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Gerard Pokruszyński Sendiherra og konsúll Póllands á Íslandi og Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, bæjarfullttrúi.

Föstudaginn síðastliðin var tekið á móti öllum þeim sem hafa skráð sig til að nýta sér þjónustuna í Safnahúsi Vestmannaeyja, en konsúllinn var með aðstöðu í Ingólfsstofu. Pokruszyński sendiherra er mjög hrifinn af Vestmannaeyjum og hyggst koma hingað aftur með konunni sinni sem sinnir kennslumálum pólskra barna til að ræða þau mál þegar nær dregur sumri.

Við vonum að sú þjónustu sem boðið var upp á síðastliðin föstudag sé komin til að vera í Eyjum, enda myndi slíkt einfalda líf margra einstaklinga með pólskt ríkisfang, ekki hvað síst barnafólks, sem hér hafa fest rætur á undanförnum árum.