Vestmannaeyjabær auglýsir eftir áhugasömum aðilum um rekstur, nýtingu og framtíðarsýn Herjólfsbæjar í Herjólfsdal.

Í október árið 2005 var ráðist í byggingu nýs Herjólfsbæjar í Herjólfsdal sem lauk árið 2006. Bærinn er tilgátuhús sem byggir á heimildum um hvernig hinn upphaflegi landnámsbær kann að hafa litið út. Húsið er byggt sem langhús og gripahús. Lista- og menningarfélagið, Herjólfsbæjarfélagið, hafði frumkvæði að smíðinni. Félagið safnaði fjármunum og fékk styrki til að endurbyggja bæinn. Árið 2020 gaf Herjólfsbæjarfélagið Vestmannaeyjabæ bæinn til varðveislu og notkunar.

Vestmannaeyjabær leitar að samstarfsaðila sem hefur áhuga á að nýta, reka og viðhalda Herjólfsbæ, með áherslu á fræðslu, kynningu á sögu og menningu þess tíma og ferðamennsku. Áhugasömum rekstraraðilum er bent á að senda hugmyndir og tillögur til Vestmannaeyjabæjar, Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, fyrir 1. apríl nk. Jafnframt er hægt að senda á netfangið [email protected] og merkja „Framtíðarsýn, nýting og rekstur Herjólfsbæjar.“

Nánari upplýsingar veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs ([email protected]) í síma 488-2000.