Aðalfundur Isavia Innanlandsflugvalla var haldinn í Vestmannaeyjum föstudaginn 12. mars. Þann sama dag funduðu Sigrún Björk Jakobsdóttir framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla og stjórn félagsins, þau Matthías Imsland stjórnarformaður og meðstjórnendur Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Eva Pandora Baldursdóttir, með Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, bæjarstjórn og ferðamálasamtökum Vestmannaeyja. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sat fundinn einnig. Þar var rætt um stöðu innanlandsflugs á Íslandi og fyrirhugaðar framkvæmdir á Vestmannaeyjaflugvelli.

Farið var yfir stöðu flugvalla og lendingarstaða á landinu og þær flugtengingar milli landshluta sem eru í boði í þessu almenningssamgöngukerfi allra landsmanna.

Á fundinum var rætt um þá staðreynd að heildarfjöldi farþega í innanlandsflugi hefði farið úr rúmlega 800 þúsund árið 2017 niður í tæp 700 þúsund 2019 og síðan í rúm 300 þúsund í fyrra. Svo skarpa lækkun má þó vissulega tengja við heimsfaraldur Covid-19 sem hófst snemma árs 2020 og geisar enn.

Farið var yfir Loftbrúarverkefnið sem var innleitt árið 2020 og rætt við bæjarstjórn og ferðamálasamtökin í Vestmannaeyjum um áhrifin sem það hefði fyrir íbúa. Þá kynntu fulltrúar Isavia Innanlandsflugvalla upplýsingar um fækkun farþega til Vestmannaeyja síðustu árin. Samdrátturinn hefur verið umtalsverður síðastliðin tíu ár og þá sérstaklega á síðasta ári. Rekja má samdráttinn í flugi að einhverju leyti til betri samgangna á sjó með Herjólfi. Rétt er þó að taka tillit til áhrifa heimsfaraldursins og þess að Flugfélagið Ernir hætti áætlunarflugi síðasta haust. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið samdi við Icelandair um tvær ferðir í viku, fram og til baka til 1. maí. Icelandair hyggur á aukna tíðni flugferða í vor. Standa vonir til þess að aukning verði á flugfarþegum til Vestmannaeyja enda flugið mikilvægur þáttur fyrir vöxt ferðaþjónustunnar í Vestmannaeyjum.

Þá kynntu framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla þær framkvæmdir sem eru á gildandi Samgönguáætlun  og  fyrirhugaðar eru á Vestmanneyjarflugvelli í sumar. Ráðist verður í nauðsynlega yfirlögn nýrrar klæðingar á báðum brautum á vellinum og mun það verða rekstrinum á flugvellinum og íbúum í Vestmannaeyjum til mikilla hagsbóta.

Á fundinum ríki bjartsýni um jákvæða þróun í innanlandsflugi og þá sérstaklega um þróun flugs til Vestmannaeyja þegar lífið kemst í eðlilegt horf eftir heimsfaraldur Covid-19.

„Innanlandsflug er gríðarlega mikilvægur hluti af almenningssamgöngum á Íslandi. Frá því ég settist í stól samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hef ég lagt mikla áherslu á að gera innanlandsflugið að hagkvæmari kosti fyrir íbúa landsbyggðarinnar og jafna aðstöðumun. Loftbrúin er flaggskipið í þeirri baráttu,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

„Þarna komu fram ýmsar góðar og gagnlegar upplýsingar um þróun mála, stöðuna nú um stundir og vonir og væntingar til framtíðarinnar,“ sagði Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, eftir fundinn. „Það var gott hljóð í fundarfólki. Það styttist í sumarið og við erum bjartsýn á framhaldið. Framkvæmdirnar í sumar skipta miklu máli fyrir flugvöllinn og þá um leið íbúa í Vestmannaeyjum.“