Um næstu mánaðamót er gert ráð fyrir að þriðja leitar- og björgunarþyrlan bætist í flugflota Landhelgisgæslunnar. Hún fær einkennisstafina TF-GNA og kemur í stað TF-LIF. Þá samþykkti ríkisstjórnin síðastliðinn föstudag tillögu dómsmálaráðherra um kaup á nýlegu skipi í stað varðskipsins Týs.

Landhelgisgæslan er með þrjár stórar björgunarþyrlur í rekstri og er ein þeirra í eigu stofnunarinnar, TF-LIF. Hún var smíðuð árið 1986 og er því orðin 35 ára gömul. Til stendur að selja hana.

Nýja þyrlan sem kemur um mánaðamótin er af gerðinni Airbus Super Puma EC-225. Landhelgisgæslan fékk í apríl 2019  til sín tvær nýjar Airbus H225 þyrlur, sérhannaðar til leitar- og björgunarstarfa. Þetta var fyrsta skrefið í endurnýjun þyrluflota Landhelgisgæslunnar sem stefnir að því að endurnýja allar þyrlur í flota sínum fyrir 2022. Þyrlurnar voru leigðar frá norska þyrluleigusalanum Knut Axel Ugland Holding AS.

Árið 2018 ákvað ríkisstjórnin að endurnýja þyrluflotann og taka í notkun Airbus EC-225 þyrlur. Í maí í fyrra var fyr­ir­huguðu útboði þyrlukaupana frestað til árs­ins 2022 og í staðinn voru leigu­samn­ing­ar vegna tveggja þyrla sem Land­helg­is­gæsl­an er með í notk­un fram­lengd­ir. Um mánaðamótin bætist svo þriðja þyrlan í flotann, eins og áður var sagt.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að áætlað sé að ákvörðun verði tekin um mögulegt útboð vegna þyrlukaupa fyrir Landhelgisgæsluna fyrir árslok 2021 en segir jafnframt við að slíkt sé í höndum stjórnvalda.

Þjónustuskip úr olíuiðnaði

Nýlega kom í ljós alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. Landhelgisgæslan á ekki nauðsynlega varahluti og telur stofnunin að smíði þeirra yrði tímafrek og ekki yrði um varanlega viðgerð að ræða. Reynt var að fá varahluti úr varðskipinu Ægi en þá kom í ljós að sama bilun var í vél hans. Einnig kom í ljós við slipptöku í janúar að tveir af tönkum skipsins eru ónýtir sökum tæringar og sjókælikerfi skipsins lekur. Varðskipið Týr er 46 ára gamalt og ástand þess orðið bágborið. Kostnaður við að gera skipið siglingarhæft var talinn nema meiru en sem svarar verðmæti skipsins eða um 100 milljónum króna.

Staða á mörkuðum fyrir kaup á nýlegum skipum, t.d. þjónustuskipum úr olíuiðnaðinum, er talin einkar góð um þessar mundir. Um er að ræða skip sem henta vel til að sinna verkefnum Landhelgisgæslunnar með mikla dráttargetu, góða stjórnhæfni, gott dekkpláss og fullkominn slökkvibúnað. Skip þessi eru vel útbúin til björgunarstarfa og til aðstoðar við almannavarnir. Þá eru þau mun umhverfisvænni en eldri skip.

Í ljósi alls þessa samþykkti ríkisstjórnin tillögu dómsmálaráðherra að dómsmálaráðherra þess efnis að þegar verði hafist handa við kaup á nýlegu skipi. Starfshópur þriggja sérfræðinga sem skipaður verður fulltrúum dómsmálaráðuneytis, Landhelgisgæslunnar og Ríkiskaupa mun vinna að undirbúningi og framkvæmd kaupanna. Samkvæmt Landhelgisgæslunni er einkar góð staða á mörkuðum fyrir kaup á nýlegum skipum og beinast sjónir meðal annars að þjónustuskipum úr olíuiðnaðnum.

greint var frá þessu á vef fiskifrétta