Þátttökumet var slegið í árlegri teiknisamkeppni MS meðal 4. bekkinga í ár. Tæplega 2.000 myndir bárust í keppnina í ár frá 89 skólum og ljóst að öll fyrri þátttökumet hafa verið slegin en að jafnaði hafa innsendar myndir verið um 1.000-1.500 talsins. Tíu myndir voru valdar úr þessum mikla fjölda og voru þar á meðal tvær myndir frá Grunnskóla Vestmannaeyja. Fyrri myndin frá Milena Mihaela Patru og sú seinni frá vinkonununum Míu Bjarnýjar Haraldsdóttur og Hlínar Huginsdóttur.
Verðlaunahöfum eru veitt viðurkenningarskjöl fyrir teikningar sínar og til viðbótar er hver mynd verðlaunuð með 40.000 kr. peningagjöf frá Mjólkursamsölunni. Verðlaunaféð rennur óskipt í bekkjarsjóð viðkomandi og getur bekkurinn nýtt þá upphæð í að gera sér glaðan dag saman og efla liðsheild í samráði við umsjónakennara og skólastjórnendur.

Verðlauna mynd Milenu Mihaelu Patru, nemenda Grunnskóla Vestmannaeyja

„Myndefnið er frjálst en ákveðin hefð hefur skapast í gegnum árin og óhætt að segja að kýr, íslenska sveitin og mjólkurfernur og séu vinsælustu viðfangsefnin hjá nemendum,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðsfulltrúi MS og einn af fulltrúum í dómnefnd keppninnar. „Í ár er ein verðlaunamyndin innblásin af verknum listamannsins Andy Warhols, sem nemendur höfðu lært um, og einstaklega gaman að sjá hvernig stíllinn hans blandast saman við hugmyndir teiknaranna.“

Verðlaunamynd Míu Bjarnýjar Haraldsdóttur og Hlínar Huginsdóttur, nemenda í Grunnskóla Vestmannaeyja

Keppnin er haldin í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn ár hvert en mikill spenningur hefur verið meðal nemenda undanfarnar vikur enda úrslitanna beðið með mikilli eftirvæntingu. Líkt og undanfarin ár naut dómnefnd liðsinnis mennta- og menningarmálaráðherra en Lilja Dögg Alfreðsdóttir tók þátt í valinu á verðlaunamyndunum fjórða árið í röð. Að sögn Lilju Daggar báru myndirnar vott um öflugt og faglegt myndmenntarstarf í skólum landsins og hrósaði hún bæði nemendum og kennurum fyrir að leggja svona hart að sér og senda einstaklega fjölbreyttar og fallegar myndir í keppnina.