Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðurland og Suðausturland sem gildir frá kl. 16 á morgun, laugardag. Búist er við austan 20-28 m/s með mjög snörpum vindhviðum við fjöll, hvassast austantil á svæðinu. Einnig má búast við snjókomu eða slyddu og skafrenningi með lélegu skyggni og hættulegum akstursskilyrðum. Ekkert ferðaveður.