Í þó nokkuð langað tíma hefur verið ákveðin óvissa um rekstur Hraunbúða.  Undanfarin ár hefur Vestmannaeyjabær rekið Hraunbúðir samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, en hefur á sama tíma staðið í einhverskonar samningaviðræðum vegna þess að samningsupphæð sem greidd hefur verið í gegnum samninginn til rekstursins hefur ekki dugað til.  Því hefur Vestmannaeyjabær, í stað þess að lækka þjónustustig, fækka heimilisfólki eða fara í aðrar sársaukafullar aðgerðir, greitt með rekstrunum í áraraðir.

Í júní á sl ári tóku svo nokkur sveitarfélög sig til, þar með talið Vestmannaeyjabær og sögðu upp samningi sínum við Sjúkratryggingar Íslands, sem frá og með 01.maí hefur falið, eða samið við, Heilbrigðisstofnun Suðurlands að taka við rekstri Hraunbúða.

Reyndar stóð til að þetta gerðist þann 01.apríl, en samið var um að fresta því um mánuð á meðan leitað var sátta og leiðir fundnar til að báðir aðilar væru sáttir við yfirfærsluna.

Hollvinasamtök Hraunbúða lýsa yfir áhyggjum sínum af þessari yfirfærslu, ef ekki á að hugsa fyrst og fremst um heimilisfólkið og að það finni ekki á neinn hátt fyrir henni.  Það er lykilatriði að ekki verði á neinn hátt hróflað við þeirri starfsemi sem þar er og gegnir starfsfólkið að sjálfsögðu þar lang stærsta hlutverkinu.  Það er afar brýnt að starfsfólki líði vel í sínu starfi og sé  í tryggu og öruggu starfsumhverfi.

Til framtíðar óskum við nýjum rektraraðilum góðs gengis og trúum því að áfram verði unnið af sama metnaði og af sömu umhyggju eins og verið hefur.  Einnig vonum við að að samtökin muni eiga gott og farstælt samstarf við Heilbrigðisstofnunina með heilsu og hamingju heimilisfólksins á Hraunbúðum að leiðarljósi.

Kærleikskveðja

Hollvinasamtök Hraunbúða