Vosbúð nytjamarkaður færði Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum nýverið peningagjöf að upphæð 150.000 kr.

Peningunum mun verða varið í búnað fyrir stofnununa í Vestmanneyjum.  Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Vosbúð gefur til stofnunarinnar og eru forsvarsmönnum nytjamarkaðarins færðar innilegustu þakkir fyrir gjöfina og þann góða hug sem að baki býr. Frá þessu er greint í frétt á heimasíðu HSU.