Arnar Pétursson þjálfari A landslið kvenna hefur valið 21 manna æfingahóp vegna leikja Íslands gegn Slóveníu í umspili um laust sæti á HM 2021 sem fram fer á Spáni 2. – 19. desember nk. ÍBV á fjór Fulltrúa í hópnum en það eru þær Birna Berg Haraldsdóttir, Harpa Valey Gylfadóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Sunna Jónsdóttir.

Heilbrigðisráðaneytið samþykkti í gær undanþágu beiðni HSÍ til hefbundinna æfinga fyrir A landslið kvenna og verður fyrsta æfingin síðdegis í dag.

Stelpurnar okkar leika fyrri leikinn í umspilinu í Slóveníu þann 16. apríl en liðin leika svo aftur hér heima þann 21. apríl nk. á Ásvöllum.

 

Íslenska hópinn má sjá hér:

Markverðir:

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vendsyssel (28/0)

Katrín Ósk Magnúsdóttir, Fram (5/0)

Saga Sif Gísladóttir, Valur (2/0)

 

Aðrir leikmenn:

Andrea Jacobsen, Kristianstad (22/19)

Anna Úrsula Guðmundsdóttir, Valur (101/221)

Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór (5/9)

Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV (61/125)

Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen (22/19)

Eva Björk Davíðsdóttir, Stjarnan (39/32)

Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (3/4)

Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (40/79)

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV (37/68)

Karen Knútsdóttir, Fram (102/369)

Lovísa Thompson, Valur (22/41)

Mariam Eradze, Valur (1/0)

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (29/36)

Rut Jónsdóttir, KA/Þór (97/205)

Sigríður Hauksdóttir, HK (19/43)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (58/43)

Thea Imani Sturludóttir, Valur (43/55)

Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (3/5)

 

Starfsfólk:

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari

Ágúst Jóhannsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari

Hlynur Morthens, markmannsþjálfari

Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, liðsstjóri

Ágústa Sigurjónsdóttir, sjúkraþjálfari

Særún Jónsdóttir, sjúkraþjálfari

Jóhann Róbertsson, læknir