Gestastofa Sea Life Trust verður opin yfir páskana sem hér segir: skírdag, föstudaginn langa, laugardag og annan í páskum, alla dagana frá tíu til fjögur. Safnið verður svo opið um helgar í apríl á laugardögum frá tíu til fjögur og sunnudögum eitt til fjögur. Litla Grá og Litla Hvít eru spenntar að taka á móti gestum aftur eftir langt hlé.