Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Á dögunum var úthlutað úr sjóðnum og hljóta alls 42 verkefni styrki að þessu sinni. Heildarupphæð styrkjanna eru rúmlega 54 milljónir kr. Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni eru á lærdómssamfélög skóla og drengi og lestur.

Grunnskóli Vestmannaeyja fékk úthlutað 2.400.000 kr fyrir verkefnið “Kveikjum neistann”. Styrkurinn var meðal þeirra hæstu sem var úthlutað í einstök verkefni.

„Umsóknir í Sprotasjóð bera vitni um nýsköpun, samvinnu og grósku sem einkennir íslenska skóla. Þar er gríðarlegur metnaður og vilji til góðra verka sem mikilvægt er að styðja við,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Eftirfarandi umsækjendur hlutu styrki að þessu sinni:

Leikskólinn Iðavöllum Patreksskóli
Leikskólinn Rauðhóll Skarðshlíðarskóli
Akurskóli Stekkjaskóli
Árbæjarskóli Vatnsendaskóli
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri Víkurskóli
Borgaskóli Vogaskóli
Breiðholtsskóli Þelamerkurskóli
Engjaskóli Ölduselsskóli
Flataskóli Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Gerðaskóli Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Glerárskóli Tækniskólinn
Grundaskóli Dalvíkurskóli
Grunnskóli Fjallabyggðar Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu
Grunnskóli Vestamannaeyja Fræðsluþjónusta Skagafjarðar
Grunnskólinn á Ísafirði Grunnskóli Borgarfjarðar
Helgafellsskóli Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Hörðuvallaskóli Grunnskólinn austan Vatna
Kirkjubæjarskóli á Síðu Grunnskólinn á Þórshöfn
Laugalækjarskóli Skólaskrifstofa Grindavíkurbæjar.
Norðlingaskóli

Heildarumsóknir til sjóðsins skiptust eftirfarandi á milli skólastiga: 66 umsóknir komu frá grunnskólastiginu, 10 umsóknir frá leikskólastiginu, 16 umsóknir frá framhaldsskólastiginu og 13 umsóknir þvert á skólastig.

Nánari upplýsingar um úthlutanir og hlutverk Sprotasjóðs má finna á heimasíðu hans.