Í dag er síðasti dagurinn í dag til þess að sækja um sumarstörf á vegum Vestmannaeyjabæjar. Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldra til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2021. Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.

Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488 2000 eða í tölvupósti: [email protected]

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.