Umsóknarfrestur til að sækja um starfslaun bæjarlistamanns er til og með 16. apríl 2021. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. maí. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.

– Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.

– Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir með tölvupósti ([email protected]) eða í síma 488-2000.