Í kvöld klukkan 18:00 fer fram bæjarstjórnarfundur nr. 1571.  Fundurinn verður fjarfundur og í beinni útsendingu á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

Eins og áður þá verður notast við Teams. Áhugasamir sem ekki eiga Teams aðgang þurfa að smella á hnappinn “Watch on the web instead”. Upptaka af fundinum verður svo aðgengilegt á youtube.

Þá birtist gluggi þar sem segir:

“Welcome to the live event!”

Þar fyrir neðan er “Sign in” hnappur fyrir þá sem að eiga aðgang eða “Join anonymously” fyrir þá sem að ekki eiga aðgang að Teams eða vilja skrá sig inn nafnlaust.

Dagskrá:

Almenn erindi
1. 202104061 – Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2020
Fyrri umræða
2. 201212068 – Umræða um samgöngumál
3. 202011006 – Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
 

Fundargerðir til staðfestingar

4. 202103010F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 343
Liður 1, Deiliskipulag á athafnasvæði AT-3 við Flugvöll, liggur fyrir til afgreiðslu og staðfestingar.
Liður 13, Fyrirspurn til Skipulagsráðs, liggur fyrir til umræðu.
Liðir 2-14 liggja fyrir til kynningar.
5. 202103011F – Fjölskyldu- og tómstundaráð – 261
Liður 1, Hraunbúðir, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 1-11 liggja fyrir til kynningar.

6. 202103016F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3151
Liður 1 liggur fyrir til kynningar.
7. 202103018F – Fræðsluráð – 342
Liðir 1-7 liggja fyrir til kynningar.