Starfsfólk Eyjafrétta óskar Vestmannaeyingum nær og fjær gleðilegs sumars. Ákveðið hefur verið að almenn hátíðarhöld í tengslum við sumardaginn 1. í Vestmannaeyjum, verði felld niður í ár, vegna Covid 19 og samkomutakmarkanna. Vestmannaeyjabær hefur engu að síður ákveðið að bjóða öldruðum einstaklingum á hjúkrunarheimilum og sjúkradeildinni upp á gleði og söng í tilefni dagsins. Vestmannaeyjabær býður jafnframt bæjarbúum frítt í sundlaugina, Eldheima og Sagnheima í tilefni dagsins.

Opnunartímar
Eldheimar           13:30-16:30
Sagnheimar        13:00-16:00
Sundlaug             9:00-16:00