Nú er aftur stefnt að nokkuð stórri bólusetningu fyrir Covid-19  í Eyjum. Í vikunni munum við bólusetja hátt í 500 einstaklinga. Segir Davíð Egilsson í tilkynningu sem send var út á fjölmiðla í Vestmannaeyjum. Annars vegar er stefnt að því að klára alla eldri en 60 ára og eldri (hópur 6) og hins vegar að halda áfram að bólusetja einstaklinga með undirliggjandi langvinna sjúkdóma sem eru í sérstökum áhættuhópi (hópur 7).

Öllum eldri en 60 ára er boðið bóluefni frá Aztra Zeneca fyrir utan einstaklinga með aukna áhættu á blóðsega eða með fyrri sögu um slíkt.  Öðrum er boðið bóluefni Pfizer. Við boðun í bólusetningu ætti fólk hér eftir að sjá hvaða bóluefni því mun verða boðið.  Við viljum vekja athygli á heimasíðu landlæknis þar sem hægt er að finna svör við flestum þeim spurningum sem upp koma varðandi bólusetningar og bóluefni.  Starfsfólk hefur ekki möguleika að svara spurningum varðandi bóluefnin eða aukaverkanir við sjálfa bólusetninguna.