Fyrsti dagur strandveiða 2021 er mánudagurinn 3. maí. Áhugi fyrir veiðunum er mikill sem marka má á umsóknum sem borist hafa til Fiskistofu. Þegar lokað var fyrir umsóknir kl 14:00 í dag höfðu 408 sótt um leyfi, sem eru 74 bátum fleira en á sama tíma í fyrra. Frá þessu er greint á vefnum smábátar.is.

Skipting leyfa eftir svæðum

Strandveiðar 2021 2020
Svæði A 180 137
Svæði B 60 42
Svæði C 53 46
Svæði D 115 109
Samtals 408 334

Óvarlegt er að ætla að fjölgun báta verði jafnmikil og þarna kemur fram, en nánast öruggt að sá viðsnúningur sem varð fyrir þremur árum mun halda áfram.  Þar á undan tímabilið [2016 – 2018] var þróunin neikvæð.

LS berst nú fyrir að fá reglugerð breytt þannig að tryggja megi nægan þorskafla til strandveiða í 12 daga í hverjum mánuði.  Í fyrra nægði viðmiðunin ekki, þrátt fyrir að bætt hefði verið við hana og voru veiðar þá stöðvaðar 19. ágúst.