Fyrsti leikur Pepsi-Max deildar kvenna fer fram í dag kl. 18:00 þegar ÍBV fær Þór/KA í heimsókn. Lið ÍBV hefur tekið miklum breytingum á milli ára. Í nýjasta tölublaði Eyjafrétta er kynning á liðinu auk þess sem rætt er við Andra Ólafsson þjálfara liðsins um komandi tímabil.

Þetta er 11. tímabil ÍBV í efstu deild kvenna í röð eftir að liðið komst upp úr 1. deildinni 2010. Besti árangur ÍBV frá árinu 2010 er 2. sætið en þá vann Þór/KA einmitt deildina. Gestirnir eru einnig með nokkuð breytt lið og verður gaman að sjá hvernig stelpunum okkar gengur í þessum fyrsta leik.