Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja árið 2021 er Hreimur Örn Heimisson. Lagið ber heitið “Göngum í takt” og fjallar um eftirvæntinguna sem að kraumar inn í manni þegar að maður er að labba niður í dal, gegnum hliðið og heyrir í drununum úr brekkunni þegar þúsundir fólks hafa þjappað sér saman og hátíðin er byrjuð. Hreimur fékk Vigni Snæ Vigfússon með sér í að pródúsera lagið. Magni, sem að söng með Hreim árið 2001 í Þjóðhátíðarlaginu Lífið er yndislegt, verður einnig með að þessu sinni ásamt Emblu Margréti 16 ára dóttur Hreims sem að syngur einnig í laginu.

Fleiri koma að laginu. Benedikt Brynleifsson spilar á trommur, Matthías Stefánsson spilar á fiðlu, Pálmi Sigurhjartarson spilar á harmonikku og Árni Þór Guðjónsson, Steini Bjarka, Benedikt Brynleifs og Vignir Snær mynda kórinn

Lag & Texti : Hreimur Örn Heimisson / meðfylgjandi er textinn við lagið svo fólk geti byrjað að læra textann fyrir hátíðina.

Lagið kemur inn á Spotify & verður frumflutt á útvarpsstöðvum landsins föstudaginn 28.maí.

Miðasala á Þjóðhátíð í Eyjum hefst miðvikudaginn 26.maí á https://dalurinn.is/

Göngum í takt (texti)
Allir í bátana yfir á eyjuna förum í ferðalag
Ég vona að ég hitti þig, hátt upp í brekkunni
Við sitjum hlið við hlið.

Þegar eldar lýsa upp ský
Við erum komin saman á ný
Og Þessi hátíð byrjar upp á nýtt

Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar

Við sitjum á sama stað, horfum á brennuna, fuðra upp í nóttna
Svo syngjum við söngvana, kannski missum við röddina
En öllum er sama um það

Og þega eldar lýsa upp ský
Við erum komin saman á ný
Þessi hátíð byrjar upp á nýtt

Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar
Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar
Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar

Við komum alltaf aftur, Herjólfsdalur heilsar okkur
Við tökum höndum saman
Við erum Þjóðhátíð !!!