Staða verkefnastjóra í Safnahúsi var auglýst laus til umsóknar á dögunum og var umsóknarfrestur til 20. maí sl. Samkvæmt auglýsingunni kemur verkefnastjóri að stefnumótun, framtíðarsýn, uppbyggingu og eflingu safnastarfs í Vestmannaeyjum, ásamt því að vinna með margvíslegum hætti úr þeim menningararfi sem varðveittur er í söfnum Vestmannaeyjabæjar. Jafnframt tekur hann þátt í að skipuleggja og bjóða upp á fjölbreyttar menningartengdar dagskrár og hvers kyns aðra viðburði í Safnahúsinu sem miðla þeirri ríkulegu menningu sem söfnin varðveita.

Alls sóttu tveir einstaklingar um starfið; ein kona og einn karl.

Við mat á umsóknum var fyrst og fremst horft til menntunar- og hæfniskrafna sem fram komu í auglýsingunni, en jafnframt metnir aðrir þættir sem nýst gætu í starfi verkefnastjóra, svo sem sérstök reynsla eða þekking. Stuðst var við fyrirfram útbúið skema við mat á umsóknum til þess að veita einkunnir fyrir ólíka  hæfnisþætti, m.a. menntun, starfsreynslu, sérstaka þekkingu sem nýst gæti í starfi, niðurstöður úr starfsviðtölum, umsögnum og annað sem gæti nýst við starfið og fyrir vinnustaðinn.

Eftir mat á umsóknum, viðtöl við umsækjendur og umsagnir þeirra sem leitað var til ákvað Vestmannaeyjabær að ráða Sigurhönnu Friðþórsdóttur í starf verkefnastjóra í Safnahúsi. Sigurhanna er 49 ára að aldri og er fædd og búsett í Vestmannaeyjum. Eiginmaður Sigurhönnu er Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri og eiga þau fjögur börn. Sigurhanna útskrifaðist með B.ED. gráðu í grunnskólafræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 1996 og tók viðbótarnám í náttúrufræði frá Háskóla Íslands 2014. Þá lauk Sigurhanna meistaragráðu (MCM)  í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2020. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari við Grunnskóla Vestmannaeyja frá árinu 1995. Hún hefur jafnframt tekið að sér ýmis trúnaðarstörf og verið í forsvari fyrir fjölda alþjóðlegra samstarfsverkefna, sem nýst geta henni í starfi verkefnastjóra.

Það er mat Vestmannaeyjabæjar að þekking og reynsla Sigurhönnu falli einkar vel að þeim verkefnum og hæfnisþáttum sem tilgreindir voru í starfsauglýsingunni.

Sigurhanna mun hefja störf 1. júlí nk.

Vestmannaeyjabær bíður hana velkomna til starfa.