Taflfélag Vestmannaeyja  heldur atskákmót í Eyjum á  laugardaginn 5. júní nk. kl. 11.45-16.30. Mótið er jafnframt til minningar um Pál Árnason, múrara (1945-2021) sem var traustur félagi í TV í um langt árabil.

Mjög góð þáttataka verður í mótinu og eru skráðir keppendur hátt í 50 talsins, þar af nokkrir stórmeistarar. Keppendur eru á öllum aldri og flestir af höfuðborgarsvæðinu, en einnig einnig nokkrir úr Eyjum og annarstaðar af landinu. Skráningu á mótið lýkur kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 4. júní á skak.is

Skákmótið fer fram á opna svæðinu í  Þekkingarsetri  Vestmannaeyja að Ægisgötu 2, á sama stað og Beddamótið minningarmót um um Bergvin Oddsson útgerðamann á Glófaxa  fór fram  11. maí 2019.  Eingöngu fimm mínútna gangur frá mótsstað að Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi.

Mótið hefst kl. 11.45 og verða tefldar sjö umferðir í opnum flokki 10 mín. á skák +5 sekúndur á leik, sem gefa stig við útreikning atskákstiga. Eftir fjórar umferðir verður tekið 20 mín. kaffihlé og síðan taka við þrjár umferðir. Þórir Benediktsson verður mótsstjóri. Reiknað er með að mótinu ljúki fyrir  kl. 16:30 síðdegis og þá verða kynnt úrslit og veitt verðlaun.  Einnig verða veitt  sérstök verðlaun fyrir þrjá efstu 16 ára og yngri. Ekkert mótsgjald og kaffiveitingar í boði TV og styrktatraðila mótsins.  Að öðru leiti vísast til kynningar  á skak.is. Áhorfendur velkomnir.

Taflfélag Vestmannaeyja.