Ég hef tilkynnt formanni uppstillingarnefndar Miðflokksins í Suðurkjördæmi um að ég sækist eftir öðru sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust.

Tímasetning tilkynningar minnar er engin tilviljun. Hana ber uppi á 104 ára afmælisdegi móðurömmu minnar heitinnar sem átti sínar sterku rætur hér á Suðurlandi. Fyrir henni bar ég ætíð mikla virðingu enda lá hún aldrei á skoðunum sínum hvort sem var um strákslæti mín eða þjóðmálaumræðuna.

Sem stofnfélagi í Miðflokknum hef ég tekið mjög virkan þátt í starfi flokksins frá upphafi og starfa nú í kjördæmaráði Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Ég tel mig ekki þurfa að sanna eitt eða neitt, fyrir einum né neinum. Ég hef látið verkin tala á liðnu kjörtímabili í Svf. Árborg sem segir alla þá sögu sem segja þarf um verk mín, orð og efndir. Það ætti enda engum að dyljast sá uppgangur sem hefur verið í Svf. Árborg undanfarin ár. Í störfum mínum sem bæjarfulltrúi í meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn hef ég tekið mjög virkan þátt í þeim verkefnum sem unnin hafa verið sem formaður eigna- og veitunefndar auk starfa minna í bæjarstjórn og bæjarráði.

Kæru félagar, að baki þessari ákvörðun minni er mikill vilji til að láta gott af mér leiða fyrir kjördæmið og Ísland allt. Ég er þakklátur fyrir þann stuðning og hvatningu sem ég hef fengið að undanförnu sem að lokum hefur leitt til þessarar ákvörðunar minnar.

Mér er það alveg ljóst að uppstillinganefndar bíður ærið verkefni að stilla upp sterkum framboðslista fyrir kosningarnar í haust. Markmið Miðflokksins í Suðurkjördæmi er að ná tveimur þingsætum í kosningunum enda eigum við ekki að sætta okkur við minna. Það vantaði lítið upp á að það tækist árið 2017, en nú eru öll teikn á lofti um að það muni takast. Til að svo megi verða, þurfum við að nýta allt sem í okkar vopnabúri býr og leggjast á eitt um að tala skýrt fyrir þeim gildum og málefnum sem Miðflokkurinn stendur fyrir. Það er einfaldlega nauðsyn fyrir land og þjóð nú þegar fyrir liggja stór verkefni við endurreisn landsins að Miðflokkurinn nái sem mestum styrk í næstu alþingiskosningum, þann slag vil ég taka af fullu afli.

Tómas Ellert Tómasson, byggingarverkfræðingur og bæjarfulltrúi Miðflokksins í Svf. Árborg.