„Upphafið var að ég var að henda netariðli á vertíðinni 1976 að ég rak tærnar í handfang á stórum gaslampa,“ segir Þórður Rafn Sigurðsson, skipstjóri og fyrrum útgerðarmaður Dala Rafns VE um sjóminjasafnið sem hann opnar í dag klukkan 13:00 í um 350 fermetra húsi hans við Flatir 23.

„Rekist ég á eitthvað forvitnilegt tengt sjávarútvegi tek ég það og set inn í hús hjá mér. Þetta vatt upp á sig og svo fór ég að safna tækjum sem sýndu þróunina í sjávarútvegi. Talaði um það við bæjaryfirvöld hvort þau vildu ekki að setja upp sjóminjasafn en fékk aldrei svar. Ákvað þá að setja sjálfur upp safn sem stækkaði verulega þegar ég keypti skipslíkön af dánarbúi Sigtryggs Helgasonar.“

„Ég held að þetta hafi í allt verið 36 bátar og hér eru 30 líkön. Flest eru þau eftir Grím Karlsson, vin minn frá Siglufirði, og Tryggva Sigurðsson vélstjóra.“

Nánar er rætt við Þórð Rafn í nýjasta tölublaði Eyjafrétta, þess má geta að safnið er opið alla helgina 13.00 til 16.00.