Alls eru átta í framboði hjá Framsóknarflokknum í Suðurkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 19. júní. Kosið verður um fimm efstu sætin á lista flokksins fyrir komandi alþingkosningar.

Kosið verður í lokuðu prófkjöri á 22 kjörstöðum vítt og breytt um kjördæmið. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður 15. júní, 16. júní og 18. júní. Kjörstaði má finna á framsokn.is. Talning fer fram 20. júní.

Framsókn náði tveimur þingmönnum á þing í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum þeim Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknar, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra og Silju Dögg Gunnarsdóttur alþingismanni.

Í framboði eru:
Sigurður Ingi Jóhannsson, Hrunamannahreppi – sækist eftir 1. sæti
Jóhann Friðrik Friðriksson, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
Silja Dögg Gunnarsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
Daði Geir Samúelsson, Hrunamannahreppi– sækist eftir  2.- 4. sæti
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Árborg – sækist eftir 3. sæti
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 3.- 4. sæti
Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjum – sækist eftir 3.- 4. sæti
Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, Vík í Mýrdal – sækist eftir 3.- 5. sæti

https://framsokn.is/wp-content/uploads/2021/06/framsokn-sudurkjordaemi-Kynningarbaeklingudur-profkjor-2021.pdf