Undanfarin ár hefur verið unnið að því að fjarlægja númerslausa bíla af götum bæjarins sem og af lóðum. Frá þessu er greint á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

Á næstunni hefst vinna við að fjarlægja númerslausar bifreiðar af lóðum og götum bæjarins og er búið að líma aðvörunarmiða á bifreiðarnar með lokafresti til að fjarlægja þær. Fyrirtækið Vaka ehf mun fjarlægja þær bifreiðar sem enn eru til staðar og það á kostnað eigenda bifreiðanna og verða bifreiðarnar fluttar í Vökuportið í Reykjavík. Kostnaður við að fjarlægja eina bifreið er verulegur en til að létta undir með fólki þá geta starfsmenn Þjónustumiðstöðvar fjarlægt umrædda bíla, eigendum að kostnaðarlausu. Skorað er á viðkomandi að klára sín mál svo ekki komi til aðgerða.