Fréttavefurinn Eyjar.net flutti fyrstur fréttir af því að ritstjóri miðilsins hefði efnt til undirskriftalista gegn ákvörðun þjóðhátíðarnefndar að afbóka Ingólf Þórarinsson, Ingó Veðurguð, sem einn af listamönnum Þjóðhátíðar í ár eins og Eyjafréttir greindu einnig frá. Nú hefur þó annar undirskriftalisti bæst við til stuðnings ákvörðunar nefndarinnar.

Undirskriftalistinn upprunalegi kom í kjölfar yfirlýsingar þjóðhátíðarnefndar þess efnis sem hér hefur komið fram. Flestir fjölmiðlar landsins hafa fjallað um málefni tónlistarmannsins frá því nafnlausar sögur einstaklinga fóru að birtast á samfélagsmiðlinum TikTok um hugsanlega óviðeigandi hegðun hans. Í framhaldinu var Ingó Veðurguð tekinn af dagskrá hátíðarinnar.

Ákvörðuninni hefur bæði verið fagnað en hún einnig gagnrýnd og sumir vilja að hún verði endurskoðuð. “Við undirrituð skorum á þjóðhátíðarnefnd ÍBV að endurskoða ákvörðun sína um að afbóka Ingólf Þórarinsson á Þjóðhátíð 2021. Það er ótækt með öllu að dómstóll götunnar stjórni því hverjir komi fram á viðburðum á Íslandi. Engin kæra liggur fyrir og því er engin rannsókn í gangi.” Var ritað sem rök með undirskriftalista til stuðnings Ingó. Umrædd undirskriftasöfnun bar heitið “Áskorun til þjóðhátíðarnefndar”. En lokað var fyrir áskorunina í gærkvöldi og höfðu þá safnast 1.726 nöfn sem heita á þjóðhátíðarnefnd. Eyjar.net greindu svo frá því í morgun að Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri, hefði afhent Herði Orra Grettissyni, formanni þjóðhátíðarnefndar ÍBV undirskriftalista sinn. Við skoðun kom í ljós að alls voru 1.660 gild nöfn sem skrifað höfðu undir áskorunina á rúmlega tveimur sólarhringum.

Söfnunin vakti upp misjöfn viðbrögð meðal almennings og hlaut hann meðal annars gagnrýni á samfélagsmiðlinum Twitter eins og fram kom í umfjöllun Eyjafrétta á miðvikudaginn.

Eins og fyrr segir hefur komið fram nýr undirskriftalisti vegna málsins sem einnig ber heitið “Áskorun til þjóðhátíðarnefndar”. Markmið þess lista er að safna undirskriftum þeirra sem styðja ákvörðun þjóðhátíðarnefndar. Þar segir: “Við undirrituð skorum á þjóðhátíðarnefnd ÍBV að endurskoða EKKI ákvörðun sína um að afbóka Ingólf Þ. á Þjóðhátíð 2021. Það er afar viðunandi niðurstaða og ósköp eðlileg viðbrögð. Það er eðlilegt að þjóðhátíðarnefnd ákveði hverjum skal bjóða að koma fram á Þjóðhátíð og nefndinni ber ekki að leyfa vafasömum mönnum að koma þar fram. Þó engin kæra liggi fyrir er EKKI brotið á mannréttindum Ingólfs að afbóka hann.”

Fyrir þessum lista er skráður óþekktur aðili að nafni Guðmundur Jónsson. Undir hinn nýja lista hafa um 3.000 manns skrifað nafnið sitt, þegar þessi frétt er rituð. Ljóst er að af þeim sem sýna stuðning í verki með undirskrift eru töluvert fleiri sammála ákvörðun nefndarinnar en ósammála.

Ekki kemur fram um seinni listann hve lengi hægt verði að skrifa undir eða þá hvort eða hvenær listinn verði afhentur þjóðhátíðarnefnd ÍBV. Í ljósi orðalags yfirlýsingar þjóðhátíðarnefndar má telja ólíklegt að til greina komi að ræða eða endurskoða ákvörðunina. Jafnvel er það flóknara nú þegar undirskriftalistarnir eru orðnir tveir.