Laugardaginn 17. júlí nk. kl. 13 stendur Sögusetrið 1627 fyrir Tyrkjaránsgöngu. Í Ár eru liðin 394 ár frá Tyrkjaráninu illræmda þegar ránsmenn frá Alsír í Norður- Afríku gengu á land í Vestmannaeyjum, drápu, særðu, rupluðu og tóku til fanga liðlega helming íbúa Vestmannaeyja. Ræningjarnir fluttu hátt á þriðja hundruð Eyjamenn til Alsír og seldu þá þar í þrældóm. Fullyrða má að þessi atburður sé einn þeirra sem haft hefur hvað mest áhrif byggð í Vestmannaeyjum, búsetu og daglegt líf Eyjamanna.

Sögusetrið 1627 er félag sem hefur m.a. það markmið að varðveita og halda á lofti sögu Tyrkjaránsins en einnig öðrum þáttum úr sögu og menningu Vestmannaeyja. Gangan á laugardag er einn liður í þessu starfi félagsins.

Gangan hefst við Ofanleiti þar sem safnast verður saman og henni lýkur á Skansinum þar sem göngufólki verður boðið upp á súpu og brauð. Gangan er ekki erfið og tekur um 1- 1 ½ kl. Gönguleiðin verður þessi: Ofanleiti – Hundraðmanna hellir – Fiskhellar – Minnismerki um Guðríði Símonardóttur – Skansinn.

Á ofangreindum stöðum og kannski fleirum verður staldrað við og þættir úr sögu Tyrkjaránsins rifjaðir upp.

Göngustjóri: Ragnar Óskarsson
Sögusetrið 1627