ÍBV stelpurnar fá Tindastól í heimsókn á Hásteinsvöll í dag klukkan 14:00. Þetta er eini leikur dagsins í 12. umferð Pepsí Max deildar kvenna. Liðin sitja í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar og því stefnir allt í hörku leik við krefjandi aðstæður í Eyjum í dag.