Fyrir nokkrum dögum var ég að vinna að verkefni á Stórhöfða og blöskraði hversu margir virtu umgengisreglur höfðans að vettugi.

Eins og flestir (greinilega ekki allir samt) vita, er Stórhöfði stór varpstaður og er mikil fuglabyggð á höfðanum. Á þessu svæði, og reyndar allt svæðið fyrir sunnan steinstaði, eru hundar bannaðir. Þrátt fyrir það varð ég var við ansi mikla hunda“umferð“ um svæðið, og margir af þeim ekki í taum og fengu því að hlaupa um svæðið og róta í lundaholum. Þessar heimsóknir ferfætlinga geta haft mikil áhrif á fuglalífið, og eru önnur svæði á eyjunni sérstaklega ætluð fyrir hunda, og hvet ég hundaeigendur til að nýta það svæði en ekki varpsvæði.

Til upplýsinga, þá hefst varptími fugla í maí og stendur yfir út september
Marinó Sigursteinsson