Gengið hefur verið frá ráðningu Garðars Sigurjónssonar í starf framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Vestmannaeyja. Mun hann hefja störf 6.september. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn fyrirtækisins sendi á fjölmiðla í morgun.
Garðar er 28 ára gamall, tveggja barna faðir og uppalinn í Garðabæ. Sambýliskona hans er Eyjakonan Sandra Dís Pálsdóttir. Tekur hann við af Kristjáni Georgssyni sem hefur sinnt því starfi sl. 6 ár með góðum árangri en hann hefur ákveðið að skipta um starfsvettvang.