Í dag, þriðjudaginn 17. ágúst, eru 19 einstaklingar í einangrun í Vestmannaeyjum vegna Covid-19 og 12 í sóttkví en von er á að fjölgi í sóttkví í dag og á morgun þar sem smitrakning stendur yfir.

Aðgerðastjórn ítrekar mikilvægi þess að bæjarbúar og aðrir gestir gæti vel að einstaklingsbundnum smitvörnum og almennum sóttvörnum, virði eins metra regluna og noti handspritt og andlitsgrímu.

Þeir sem finna fyrir flensueinkennum eru hvattir til að fara í sýnatöku og halda sig til hlés þar til niðurstaða liggur fyrir. Á HSU í Vestmannaeyjum, Sólhlíð 10, eru tekin sýni alla virka daga kl. 13:00-13:15. Best er að skrá sig í sýnatöku gegnum vefsíðuna Heilsuvera.is en einnig má hafa samband við heilsugæsluna í síma 432-2500. Mæting í sýnatöku er við inngang á 1. hæð, aðkoma frá Helgafellsbraut. Raðir geta myndast utandyra á álagspunktum í sýnatöku og er fólk hvatt til að klæða sig eftir veðri. Allir sem mæta í sýnatöku eiga að nota andlitsgrímu.