Andri Erlingsson í 3. sæti á Íslandsmóti unglinga

0
Andri Erlingsson í 3. sæti á Íslandsmóti unglinga
Frá vinstri: Hjalti Jóhannsson, Markús Marelsson og Andri Erlingsson. Mynd/[email protected]

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021. Markús Marelsson, Golfklúbbnum Keili, er Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri. Hann lék á 7 höggu yfir pari samtals eða 223 höggum (77-75-71). Hjalti Jóhannsson, Golfklúbbnum Keili, varð annar á 233 höggum, 17 höggum yfir pari, (79-78-76). Eyjamaðurinn Andri Erlingsson, Golfklúbbi Vestmannaeyja, varð þriðji á 241 höggi (80-84-77), 25 höggum yfir pari vallar.