Við greindum frá því í síðustu viku að stefnt væri að bólusetningu á grunnskólanemun í 7. til 10 bekk eða 12 ára og eldri. Guðný Bogadóttir yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu Vestmannaeyja hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands sagði í samtali við Eyjafréttir að í dag verður börnum 12 – 15 ára boðin bólusetning með pfizer.  “Bólusett verður í Íþróttahúsinu og foreldri/forráðamaður verða að fylgja barninu. Er það metið sem upplýst samþykki foreldris/forráðmanns barns. Varðandi 12 ára börn þá er það ekki árgangurinn heldur afmælisdagurinn sem gildir.”

Árgangar mæta á eftirfarandi tímum:
Kl. 13:00 :Árgangur 2006
Kl. 13:00: Árgangur 2009 (aðeins börn fædd frá (janúar- apríl )
Kl. 13:20: Árgangur 2007
Kl. 13:20: Árgangur 2009 (aðeins börn fædd frá mai- 24. ágúst). Athugið að börn sem ekki eru orðin 12 ára fá ekki bólusetningu þennan dag.
Kl. 13:40: Árgangur 2008

Mögulega fá freldrar/forráðamenn send strikamerki á símanúmer, eða skráð verður eftir kennitölum á staðnum.

Guðný segir annar hafa verið rólegt yfir bólusetningum síðustu vikurnar. “Í síðustu viku var ekki bólusett í Vestmannaeyjum. Í vikunni þar á undan var boðaður hópur fólks sem fengið hafði Jansen og boðað örvunarskammtar, mæting var léleg enda margir í fríum. Bólusetningarhópurinn var undirbúinn fyrir það og fékk  heimilisfólk á Hraunbúðum og hluti af fólki í dagdvöl þriðja skammt bóluefnis, Verið var að bólusetja með pfizer. Í Vikunni verður jafnframt haldið áfram að bjóða þeim sem bólusettir voru með Janssen örvunarskammt og í framhaldinu byrjað að bjóða fólki í elstu árgöngum þriðja örvunarskammt með pfizer.”