Alþjóðleg leit stendur nú yfir að hollensku skútunni Laurel sem hélt frá Vestmannaeyjum áleiðis til Grænlands fyrir um mánuði. Einn maður er um borð í skútunni og hefur ekkert spurst til hans frá því hann hélt frá Vestmannaeyjum fyrir tæpum mánuði.

Takmarkaður fjarskiptabúnaður er um borð í skútunni, sem ber heitið Laurel, og enginn ferilvöktunarbúnaður. Íslensk og dönsk yfirvöld hafa því ekki náð sambandi við manninn um borð. Varðskipið Þór og þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa svipast um eftir skútunni síðustu daga en án árangurs. Þá hafa flugvélar og bátar danska heraflans jafnframt leitað skútunnar suður og austur af Grænlandi.

Sjófarendur eru beðnir um að láta Landhelgisgæsluna vita ef þeir verða varir við skútuna, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.