Í ljósi mikillar óvissu í samfélaginu vegna Covid-19 og viðvarandi sótttvarnartakmarkana, höfum við ákveðið að fresta Lundaballinu – Uppskeruhátíð bjargveiðimanna 2021, sem fyrirhugað var að halda 25. september næstkomandi. Þar sem við Brandarar höfum verið að vinna sleitulaust að skemmtiatriðum fyrir Lundaballið síðustu tvö ár vonum við að okkur verði sýnt það traust að fá að halda ballið að ári liðnu.

Sjáumst á Lundaballi 2022.
Brandarar