Til hamingju ÍBV sem komst upp í efstu deild um síðustu helgi í fótboltanum. Nú er bara að fylgja þessu eftir og styrkja stöðu okkar í efstu deild.

Maður horfir björtum augum á framtíðina í íþróttunum með meistaraflokk í handbolta og fótbolta bæði kvenna og karla og að unglingastarfið fái að blómstra en obbosí rólegur kallinn minn, það hafa TVÆR þjóðhátíðir dottið út svo nú  þarf eitthvað nýtt að koma til. Formaður ÍBV sendi út neyðarkall um daginn og ég veit að margir brugðust við. Nú er það þannig í þessari blessaðri veröld okkar að sumir hafa meira á milli handanna en aðrir og vonandi koma sem flestir að þessu og hjálpa félaginu okkar á erfiðum tímum því öll eigum við tengingu við einhvern sem er í íþróttum og forvarnarstarfið sem þeir sinna er öllum mikilvægt.

SJÓMENN OG SAMNINGAR

Nú eru sjómenn með lausa samninga og nýverið slitu þeir viðræðum við atvinnurekendur. Ég vona þeirra vegna að Þorgerður Katrín verði ekki næsti sjávarútvegsráðherra því hún montaði sig ekkert smá af því síðast að vera tilbúin að setja lög á menn ef þeir kláruðu ekki að semja strax. Vonandi ná deiluaðilar saman og semja til lengri tíma.  Það er nefnilega þannig að sjómenn virðast vera svolítið í uppáhaldi hjá stjórnvöldum þegar kemur að grimmilegum aðgerðum, samanber afnám  sjómannaafsláttar á sínum tíma. Sýnum sjómönnunum okkar þá virðingu sem þeir eiga skilið.

FISKVEIÐISTEFNAN

Mikið karp er um sjávarútveginn skiljanlega og sitt sýnist hverjum. Sumar af þessum tillögum sem hafa komið fram tel ég vera óskynsamlegar. Hitt er svo annað mál að pólitíkin og hagsmunaaðilar litlir sem stórir verða að fara að setjast niður og ná lendingu. Sjálfur er ég ekki með neinar töfralausnir eins og margir. En á ferð minni um kjördæmið fann ég fyrir því að það eru mörg fyrirtæki sem óttast að þær breytingar sem verði gætu orðið þeim ofviða, sérstaklega minni fyrirtækin. Margir tala um að sum sjávarútvegsfyrirtæki séu orðin of stór. Ég legg alveg skilning á það og kannski vantaði að setja eitthvað aðhald á fyrirtæki í ferlinu. En gleymum því ekki að stóru fyrirtækin eru að leggja ýmislegt til, bæði vegna rannsókna og einnig til samfélagsins sjálfs. Sjálfur vinn ég hjá stórútgerðarfyrirtæki og erum við oft að fara yfir hvað við getum gert betur bæði í sambandi við gæði á fisk og veiðarfæri. Nýliðun í sjávarútvegi er eitthvað sem alltaf er verið að ræða og það tel ég vera hlutverk næsta þings að koma að málum. Þá er ekki ónýtt að hafa netagerðarmann til að greiða úr flækjunni. Við komum alltaf til með að þurfa á víðtækri sátt að halda og þannig hefur mér gengið best í lífinu, að vera í sátt við menn og málefni en til að það megi ganga þá þarf ég stuðning til góðra verka. X-M

Góðar stundir.

Guðni Hjörleifsson sem skipar 4.sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi.