Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2022 undir heitinu “Viltu hafa áhrif 2022?” Markmiðið með þessu er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á fjárhagsáætlun næsta árs. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengd bókaútgáfa, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.

Ábendingar og tillögur
Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2022, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 8. október 2021 á netfangið [email protected], eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Matthildar Halldórsdóttur.

Styrkir
Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2022, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 8. október 2021 á sama netfang eða póstfang.
Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang umsækjenda, lýsing á verkefninu, áætluð upphæð og framkvæmdatími (þar sem við á). Ef sótt er um styrk til fjárfrekra verkefna þarf að koma fram sundurliðuð áætlun um einstaka kostnaðarliði.
Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur.
Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf.