Tíu sinnum meiri…….

0
Tíu sinnum meiri…….
Ragnar Óskarsson

Þegar ég var peyi og lék mér í Lautinni endaði mörg rimman og rökræðan á því að sá sem rökþrota var orðinn greip til þess ráðs að kveða upp úr og segja: „Ég er tíu sinnum meiri en hvað sem þú segir“. Þar með var það ákveðið, afgreitt og ekki orð um það meir. Viðkomandi gekk síðan burt, keikur og sjálfsánægður sem sigurvegari. Við hin sátum eftir og brostum í kampinn. En sá sem svona hagaði sér missti nær undantekningarlaust alla virðingu innan krakkahópsins með þessu tiltæki sínu.

Mér hefur oft dottið þetta í hug þegar ég heyri málflutning Samfylkingarinnar nú í kosningabaráttunni. Samfylkingin hefur allt kjörtímabilið sem nú er að ljúka verið eins og stefnulaust skip, ekkert lagt til málanna, engri stefnu fylgt en í þess stað eytt allri sinni orku í að hamast gegn Vinstrihreyfingunni- grænu framboði með innantómum upphrópunum. Nú þegar kosningabaráttan stendur sem hæst hefur stefnulaus Samfylkingin áttað sig á því í öllum látunum gegn Vinstri grænum gleymdist að móta einhverja kosningastefnu og greip því í örvæntingu til aðferðarinnar sem ég nefndi hér fyrr. Nú lofar flokkurinn öllum flokkum meir og segir: „Við lofum tíu sinnum meiru en öllu sem þið lofið“. Og sjálfsánægjan skín sem aldrei fyrr. Nú lofar Sjálfstæðisflokkurinn t.d. landi tækifæranna og auðvitað toppar Samfylkingin það með hvorki meira né minna en draumalandinu. Við skulum hins vegar vera minnug þess að þegar þessir flokkar voru síðast saman við völd fyrir skemmstu buðu þeir ásamt Framsóknarflokknum okkur Íslendingum upp á hvorki meira né minna er hrun íslenska efnahagskerfisins með hrikalegum afleiðingum. Enn eiga tugþúsund Íslendinga um sárt að binda síðan þá.

Annars er það kannski að bera í bakkafullan lækinn að ræða hér um kosningabaráttuna. Þó langar mig að vekja athygli á nokkrum mikilvægum atriðum sem ekki orka tvímælis.

• Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur á liðnu kjörtímabili unnið þrekvirki á fjölmörgum sviðum þrátt fyrir afar erfiðar ytri aðstæður. Hér nægir að nefna stóraukna sókn í heilbrigðismálum og minnkandi kostnaðarþátttöku almennings í þeirri þjónustu. Auk þessa er unnið hröðum skrefum að uppbyggingu hátæknisjúkrahúss fyrir alla landsmenn. Þá hefur ríkisstjórnin hlotið ómælt hrós fyrir viðbrögð sín við heimfaraldrinum, bæði innan lands og utan.
• Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur unnið marga áfangasigra í umhverfismálum með það fyrr augum að draga úr mengun, vernda íslenska náttúru og gera almenningi auðveldara að njóta hennar.
• Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur unnið þrekvirki á uppbyggingu hvers konar innviða. Hér nægir að nefna samgöngumálin sem hafa tekið stakkaskiptum á síðustu árum.

Í kosningunum á laugardaginn ganga ríkisstjórnarflokkarnir til kosninga með ólíkar kosningaáherslur. Hér nefni ég nokkur dæmi sem sýna svart á hvítu þennan mun.
• Vinstri græn hafa heilsteypta umhverfisstefnu bæði í loftslags- og náttúruverndarmálum þar sem hagsmunir almennings ráða ferð. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur eru með óljósa stefnu í loftslagsmálum og styðja eiginhagsmunastefnu gegn hagsmunum almennings þegar kemur að náttúruvernd.
• Vinstri græn vilja efla heilbrigðisþjónustu fyrir alla á opinberum og samfélagslegum grunni. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur vilja meiri hagnaðardrifna einkavæðingu í heilbrigðiskefið sem þýðir einungis stóraukin útgjöld almennings á þessu sviði.
• Vinstri græn vilja að stórútgerðin greiði mun meir af sínum gífurlega hagnaði til þjóðarinnar. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur vilja engar breyting hér á. Stórútgerðin á áfram að fá að valsa með auðlindir þjóðarinnar. Hagsmunir hinna fáu skulu ofar hagsmunum almennings.
Í kosningunum á laugardag hafna Vinstri græn öllum „tíu sinnum meiri en hvað sem þú segir“ aðferðum Við stöndum enn sem fyrr fyrir jafnrétti, jöfnuði, réttlæti, kvenfrelsi, umhverfis- og náttúruvernd, lýðræði, sjálfstæði þjóðarinnar og friðsamlegri sambúð þjóða. Höfum það í huga í kjörklefanum.
Ragnar Óskarsson