Aðstaða til sjósunds í Vestmannaeyjum var til umræðu á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja á mánudag. Mikill sjósundsáhugi er á Íslandi og eru Vestmannaeyjar ekki þar undanskilin. Undanfarin misseri hafa margir eyjamenn og gestir stundað sjósund úr Klaufinni. Umræða hefur verið um að bæta þurfi aðstöðu sem mun nýtast heimamönnum og ferðamönnum sem hingað koma. Yrði þetta enn eitt aðdráttaraflið ef af yrði.

Meirihluti E- og H-lista lagði til að kannaður verði áhugi á því að byggja upp sjósundsaðstöðu í Klaufinni af einkaaðilum eða í samstarfi einkaaðila við Vestmannaeyjabæ. Því er lagt til við umhverfis- og framkvæmdasvið að auglýst verði eftir hugmyndum um aðstöðu til sjósunds í Klaufinni. Í framhaldinu er starfsmönnum falið að meta og kostnaðargreina þær hugmyndir sem berast og leggja aftur fyrir ráðið áður en lengra er haldið. Tillagan var samþykkt.

Meðfylgjandi myndir eru hugmyndir unnar af Jóa Listó ekki er um endanlega hönnun að ræða.