Nú er komið að bólsetningu við hinni árlegu inflúensu og í Vestmannaeyjum verður bólusett þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl  13:30 – 15:30.  Tímum verður bætt við ef þarf.

Fram til 8. nóvember verður einungis fólki í forgangshópum boðið upp á bólusetningu.  Það eru;

Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lung- na-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Barnshafandi konur.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Frá 15 nóvember gefst fólki sem ekki tilheyrir ofangreindum forgangshópum kostur á að skrá sig í bólusetningum í síma 4322500  svo starfsfólki fyrirtækja og stofnana sem þess óska og forsvarsmenn beðnir um að hafa samband við heilsugæsluna og láta skrá niður óskir.
Athugið að æskilegt er að a.m.k.  2 vikur líði milli inflúensubólusetningarog COVID 19 bólusetningar.