Eyjamenn sækja Framara heim í fyrsta leik Olísdeildar karla í kvöld sem hefst klukkan 18.00. Bæði lið hafa farið ágætlega af stað í haust og einungis tapað sitt hvorum leiknum. Fram situr í fjórða sæti eftir fimm leiki og ÍBV í því sjötta eftir fjóra leiki.