Það verður sannkallað stuð á Herrakvöldi ÍBV knattspyrnu sem fram fer í Höllinni í kvöld. Útvarpsmaðurinn og lýsandinn Rikki G verður veislustjóri og Júníus Meyvant mun vera með heimsklassa tónlistaratriði eins og hans er von og vísa. Þá verður happdrætti, uppboð og fullt af skemmtilegum bjórleikjum. En talandi um það, þá fellur snjórinn einnig þann 29. október og verður sá blái og danski á boðstólum. Verð er aðeins 6.000 kr og verður matarveisla að hætti Einsa kalda.Fyrirtæki geta pantað miða á [email protected] og einstaklingar keypt á Hárstofu Viktors.